Við létum skíra litlu 12. júní sl.Og hér er hún Ragna Evey. Bara dásamleg :-)
Magga vinkona var svo yndisleg að tína fyrir mig blóm til að skreyta salinn með. Það kom fátt annað til greina en að setja blómin í barnamatskrukkur ;-)
Ég bjó svo til svona veifur á nokkrar krukkur sem voru notaðar undir kerti..
Við erum þrjár systur að vestan sem búum núna á þremur stöðum á landinu. Okkur finnst öllum gaman að búa til eitthvað fallegt og ákváðum því að stofna þessa síðu til að geta deilt hinu og þessu með hvorri annarri, bæði því sem við erum að dunda við og svo bara hinum ýmsu hugleiðingum.
Ef það er eitthvað sérstakt sem við myndum vilja smita aðra af þá er það lífsgleði! Við erum með stór hjörtu og því oft á tíðum væmnar, en við eigum það líka til að vera hipp og kúl ;)
Það er öllum velkomið að skoða sig hér um, og endilega skrifið lítil komment þegar þið heimsækið okkur. Ef þið viljið ná sambandi við okkur sendið okkur endilega póst á systraseidur@yahoo.com :)
Allar myndir hér eru okkar eign nema annað sé tekið fram
1 comments:
Til hamingju með skírnina. Fallegt nafn sem þið völduð á þessa sætu stelpu og mér finnst gaman að sjá gulan borða á skírnarkjól.
Post a Comment