Dagurinn í dag átti að vera brúðkaupsdagurinn okkar Arilíusar. En þegar við vissum um laumufarþegann flýttum við brúðkaupinu og giftum okkur fyrsta dag vetrar síðasta vetur. Hér eru myndir frá þeim degi sem var algerlega æðislegur!
En í tilefni dagsins langar mig að skella inn nokkrum myndum úr fínum brúðkaupum. Og vil í leiðinni hvetja allar ógiftar systur mínar og vinkonur til þess að drífa í þessu svo ég geti fengið að taka þátt í undirbúningnum;-)






Set svo inn þetta fallega myndband frá brúðkaupinu hjá Elsie á ABeautifulMess. Bara krúttlegt og skemmtilegar hugmyndir líka :-)





Stjarna dagsins



Salurinn alveg hreint stórglæsilegur. Glansaði af hausti, en mamma var svo dugleg að safna saman haustlitunum úr náttúrunni.
Allir að gera og græja
Merkingarnar á borðunum sem ég var svo heppin að fá góða hjálp við að gera
Kom ekkert smá skemmtilega út! :-)

Ekki hefðbundinn kökutoppur :-) Árný heklaði þetta. Loftbelgurinn með fuglunum hékk svo yfir brúðartertunni.

Svona líka rosalega ánægðir með þetta allt saman 
