Showing posts with label gleðigjöf. Show all posts
Showing posts with label gleðigjöf. Show all posts

Wednesday, December 7, 2011

Jólagleðigjöf - Vinningshafi :-)

Öll nöfninKomin í pott



Hrista aðeins upp í þessu
Draga út 




Og þar stendur: Íris. Þær voru 2 í pottinum en það er þessi Íris sem vann. Til hamingju!
Eitt stykki hvítur garland er þinn! Vinsamlegast sendu mér heimilisfangið þitt á systraseidur@yahoo.com. Þá fer hann í póst á morgun :-)


Fyrir ykkur hinar þá getiði föndrað svona sjálfar:-) Það sem ég gerði var að ég fór í word og skrifaði hvern staf einu sinni (gleðijó) fann svo letur og stærð. Ég notaði helvetica og stærð 420. Algerlega uppáhaldsletrið þessa dagana! Klippti svo stafina út og strikaði eftir þeim á þykkt karton. Stafina límdi ég svo á borðann með límbandi með lími báðum megin. ég lokaði svo dæminu með að setja teip í sama lit aftan á þetta allt saman svo þetta tolli pottþétt.


Annars er ég alveg að verða klikkuð á öllu þessu föndri...

Er að hamast við að föndra nokkrar jólagjafir. Langar mest til að sýna ykkur en ætla að bíða með það þar til eftir jól. Næst fáiði samt að sjá skemmtilega jóladagatal söngfuglsins Erlu Marenar sem er súkkulaðigikkur mikill!

 Viljiði svo fá meiri jólainnblástur? Smelliði þá á like takkan hér að neðan eða skiljið eftir komment ;-)


Monday, December 5, 2011

Gleðileg jól garlandar - gleðigjöf!

Er búin að föndra nokkra svona garlanda úr þykku kartoni. Ótrúlega krúttlegir! :-)

Rauður á rauðum silkiborða
Hvítur á hvítri blúndu
Svartur á svörtum silkiborða


Höfum smá leik! Þeim sem langar í eitt stykki garland skilja eftir comment með nafninu sínu og takiði þar líka fram hvaða garland ykkur langar í. Rauðan, hvítan eða svartan :-) Ég ætla að draga út miðvikudagsmorguninn kl. 10. Svo leikurinn verður opin þangað til! :-)

Monday, February 7, 2011

Gleðigjöf - Vinningshafi :-)

Nöfnin 18 sem kvittuðu undir

Það er Ásta Dröfn, sem átti komment númer 11. 

Asta Drofn on February 2, 2011 8:22 PM said...

Flott
kv Ásta Dröfn


Þú mátt senda mér heimilisfangið þitt á systraseidur@yahoo.com og þá sendi ég þér myndina


Wednesday, February 2, 2011

Gleðigjöf


Myndin er 30X40 cm. Kemur vel út hvort sem hún er í ramma eða ekki. Hún passar í svona ramma frá IKEA

Til að vera með í leiknum setjið þið bara nafnið ykkar í komment hér fyrir neðan.

Ég ætla að draga út mánudagskvöldið 7. febrúar.

Gleðilegan miðvikudag!! :-)

Monday, July 5, 2010

Vinningshafi :)

Jæja, loksins komst ég í að draga og daddara...

Komment númer 19

- Til hamingju Vildís! -


Litla kisan bíður spennt eftir að komast á nýja heimilið sitt ;)

Tuesday, June 29, 2010

Gleðigjöf #2

Jæja gott fólk, nú er komið að annarri gleðigjöfinni hér á Systraseið.
Við ætlum sem sagt að gefa heppnum einstakling þessa litlu kisu. Þið þurfið bara að kommenta hér við færsluna og svo verður dregið um það hver fær að ættleiða hana :)

(dregið verður úr þeim kommentum sem koma fyrir kl 18 á sunnudag)



Who can say no to that face? ;)


Hér er kisulóran fyrir framan blómin sem hann Tótimar hefur fært mér heim af leikskólanum


Freyja er búin að kanna það hvort rétt sé gengið frá öllum endum ;)


Það er rosa lítið mál að kommenta, ef þið eruð ekki með g0ogle account þá er bara að haka í name flipann og skrifa nafnið þar.

Tuesday, April 27, 2010

Vinningshafi gleðigjafarinnar :-)

Sérlegur aðstoðamaður minn hjálpaði mér að draga út í dag

Og hún dró þá sem átti 11. kommentið.
Og það er: 
 Anonymous María said...

En þið sniðugar. Mig langar alveg endilega í svona flotta tösku.


Mátt senda mér heimilisfangið þitt María á systraseidur@yahoo.com


Friday, April 23, 2010

Gleðigjöf númer eitt

Í dag ætlum við að byrja á svolitlu nýju. En annað slagið er planið að vera með smá gjöf hér á síðunni. En til þess að vera með þarf að kommenta hér við færsluna með nafni og svo ætla ég að draga úr þeim nöfnum á þriðjudaginn kl 2. :-)

Gleðigjöfin í dag er þessi gasalega fíni innkaupapoki :-)

Það er rosa lítið mál að kommenta, ef þið eruð ekki með g0ogle account þá er bara að haka í name flipann og skrifa nafnið þar.
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...