Eins og margir vita er ég frekar hekl-óð. Í gær var verið að kynna nýja heklbók í Litlu prjónabúðinni svo ég dreif mig þangað. Bókin heitir Þóra - heklbók og þó ég hafi ekki keypt hana í gær þá á hún eftir að enda í bókahillunni minni í náinni framtíð því að í henni eru margar uppskriftir sem ég verð að eignast, til dæmis þessar:
Kannski ég eigi svo eftir að gefa út mína eigin heklbók einhverntíman... hmm?
Showing posts with label hekl. Show all posts
Showing posts with label hekl. Show all posts
Sunday, December 11, 2011
Wednesday, October 5, 2011
Afmælisdúkurinn
Author: Kristrún Helga(Dúdda)
|
at:10:42
|
Category :
Dúdda-föndur,
heimilið,
hekl,
Project restyle
|
Ég keypti þessa risablúndugardínu í nytjamarkaðnum. Klippti hana til svo hún passaði á borðstofuborðið. Þurfti samt að klippa hana í sundur í miðjunni svo hún myndi passa sem best. Ákvað að nota litað bómullargarn til þess að sauma hana saman. Þegar ég var búin að því gat ég ekki hætt svo ég sótti fleiri liti og fór að þræða þá í. Til þess að fela endana heklaði ég svo smá hnappa sem ég saumaði í þar sem þáðurinn endaði. Ég er ekkert smá glöð með nýja dúkinn minn! Blúnduna fékk ég á 300 kr! Veeeel gert! haha.
Nokkrar myndir af dýrðinni! :-)
Sunday, September 25, 2011
Ný uppskrift frá mér
Author: Árný Hekla
|
at:09:00
|
Category :
amigurumi,
Árný-föndur,
hekl
|
Hér er nýjasta uppskriftin mín, hvernig líst ykkur á?
Ég á eftir að skrifa hana snyrtilega upp og svo verður hægt að nálgast hana á Ravelry
Það er hægt að skoða fleiri myndir á Ravelry
Núna hef ég sem sagt gert þrjár uppskriftir, þennan gaur og svo:
Ég á eftir að skrifa hana snyrtilega upp og svo verður hægt að nálgast hana á Ravelry
Þessi litli gaur á núna heima hjá elsku mömmu minni :)
Núna hef ég sem sagt gert þrjár uppskriftir, þennan gaur og svo:
og "Freyju dúkku"
Tuesday, September 20, 2011
Friday, August 12, 2011
Apinn seldur :)
Jæja, apinn er seldur :)
Það er ekki svo langt þar til næsti verður tilbúinn, hann verður á sama verði.
En Dúdda, þú varst að spá í púða um daginn, ég held ég hafi fundið uppskriftina að honum, eða að minnsta kosti mjög líka uppskrift
Þetta er sá sem þú varst að skoða:
Það er ekki svo langt þar til næsti verður tilbúinn, hann verður á sama verði.
En Dúdda, þú varst að spá í púða um daginn, ég held ég hafi fundið uppskriftina að honum, eða að minnsta kosti mjög líka uppskrift
Þetta er sá sem þú varst að skoða:
og hér er sá sem ég er að tala um:
önnur mynd:
Thursday, August 11, 2011
Apaskott í leit að heimili
Author: Árný Hekla
|
at:22:26
|
Category :
amigurumi,
Árný-föndur,
hekl
|
Hér er lítið apaskott sem er að leita að nýju heimili.
Hann er til sölu hjá mér á 6000 kr, áhugasamir geta sent mér e-mail á hekla_9@hotmail.com
- fyrstir koma fyrstir fá :) -
Friday, August 5, 2011
Fínar peysur
Ragna Evey er svo sannarlega heppin stelpa - og ég heppin mamma, því hún hefur fengið svo mikið af fallegum, heimagerðum gersemum. Sjáiði þessar peysur!
Saturday, June 25, 2011
Allskonar ljós
Ég er búin að fá nóg af ljósinu yfir borðstofuborðinu mínu og langar svo að búa til eitthvað fallegt, veit bara ekki alveg hvernig ljós ég vil... Ef þú hefur einhverjar hugmyndir þá máttu alveg deila þeim með mér :)
Hér eru nokkur falleg ljós sem ég hef rekist á.:
Hér eru nokkur falleg ljós sem ég hef rekist á.:
Rosa fallegt ljós gert úr dúllum:
Hér eru leiðbeiningar:
og hér:
ooog hér...
Svo eru hérna fleiri skemmtileg ljós og leiðbeiningar um hvernig þau eru gerð
Noodle Doodle ljós sem Begga fjallaði um hér
Saturday, June 4, 2011
Pottaleppar fyrir mömmu
Author: Árný Hekla
|
at:09:33
|
Category :
Árný-föndur,
hekl
|
Mamma getur verið svo fyndin. Hún hefur lengi ætlað að hekla sjálf nýja pottaleppa þar sem uppáhalds pottalepparnir hennar voru orðnir svo slitnir. Lúmska dóttir hennar ég fann uppskrift að alveg eins pottaleppum og ég heklaði þá fyrir hana, mamma var rosa ánægð með gjöfina.
Þegar ég síðan kom næst í heimsókn til hennar hanga lepparnir á áberandi stað en mamma notar þá aldrei því eins og hún orðaði það "þá eru þeir spari". Hún notar þess í stað þessa slitnu, hahahahaha :)
Spari-pottalepparnir hennar mömmu:
Tuesday, May 31, 2011
Dúkka
Author: Árný Hekla
|
at:14:41
|
Category :
amigurumi,
Árný-föndur,
hekl
|
Svo virðist sem ég hafi gleymt að blogga um þetta krútt... Þetta er önnur uppskriftin sem ég geri alveg sjálf.
Ég er að hugsa um að selja svona dúkkur. Verð fyrir sérpantaða dúkku er 4000 kr, þá er hægt að óska eftir ákveðnum hárlit og velja lit á kjólinn. Svo stefni ég á að gera stráka dúkku líka, hún verður í smekkbuxum. Það verður þá auðvitað hægt að fá stelpu dúkku í smekkbuxum, og strák í kjól ef einhver óskar eftir því ;)
Tótimar kallar þessa alltaf Freyju dúkku:
Friday, April 1, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)






























