Showing posts with label Árný-föndur. Show all posts
Showing posts with label Árný-föndur. Show all posts

Friday, June 8, 2012

Hálsmen :)

Það er nú þó nokkuð langt síðan ég bjó þetta hálsmen til. Það er gert með því að klippa gamlan bol niður niður í ræmur og föndra svo úr ræmunum... fékk þessa hugmynd á pinterest og ég er búin að búa til nokkur í viðbót, set inn myndir af þeim seinna og link ef einhver hefur áhuga.  


Svo notaði ég eitt bandið sem varð til úr bolnum til að gera þetta hálsmen um daginn, bara nokkrar krúttlegar perlur þræddar upp á.

 



Thursday, May 31, 2012

Sól, bara sól


Sól úti,
sól inni,
sól í hjarta,
sól í sinni.
Sól, bara sól.


Smá sólarkveðja :-)

Thursday, May 24, 2012

Nýjasta dúkkan

Þá er ég búin með aðra dúkku, þessi er gerð eftir uppskrift frá Beth á http://www.byhookbyhand.blogspot.com/ (uppskriftin heitir mini free spirit)



Núna vantar bara á hana föt :)

Monday, May 14, 2012

Sól, sól skín á mig

Hvert fór sumarið? Ég geri tilraun til að kalla fram sólina á ný... ;)


Sunday, May 6, 2012

Kreisí trúður

Viljið þið sjá þessa dúkku? Þetta er nýjasta fígúran sem hekluð var einhversstaðar út í heim eftir minni uppskrift, LOVE IT!!!



Tuesday, February 14, 2012

Ofurhetjur!

Í ágúst í fyrra saumaði ég skikkju fyrir soninn. Hann var alveg Batman sjúkur og því hafði ég loksins not fyrir hræðilega ljót svört sængurföt sem höfðu legið inn í saumaskáp.
Þar sem hann var að springa úr spennu lá hann nánast á bakinu á mér allan tímann og fylgdist með öllu ferlinu. Saumaskapurinn var ekki beinlínis fallegur en það skipti engu, drengurinn var alsæll!


Svo á laugardaginn varð dóttirin eitthvað svo leið yfir því að hún ætti enga skykkju svo ég leyfði henni að velja sér efni úr skápnum. Hún valdi blátt flís og ég notaði rauðan borða sem band.

Núna á ég tvær ofurhetjur! :)





Sunday, September 25, 2011

Ný uppskrift frá mér

Hér er nýjasta uppskriftin mín, hvernig líst ykkur á?
Ég á eftir að skrifa hana snyrtilega upp og svo verður hægt að nálgast hana á Ravelry


Þessi litli gaur á núna heima hjá elsku mömmu minni :)

Það er hægt að skoða fleiri myndir á Ravelry

Núna hef ég sem sagt gert þrjár uppskriftir, þennan gaur og svo:


og "Freyju dúkku"

Tuesday, September 20, 2011

Apaskott

Nýjasti apinn hefur fengið gott heimili hjá litlum, fallegum dreng :)



Tuesday, August 16, 2011

Næsti api að verða klár

Nú er ég búin að hekla alla partana fyrir næsta apa sem ég ætla að selja, en það er nú þegar búið að panta hann :)

Aparnir eru nú svolítið spes svona ósamsettir :)



Thursday, August 11, 2011

Apaskott í leit að heimili

Hér er lítið apaskott sem er að leita að nýju heimili.

Hann er til sölu hjá mér á 6000 kr, áhugasamir geta sent mér e-mail á hekla_9@hotmail.com
- fyrstir koma fyrstir fá :) -

Saturday, June 4, 2011

Pottaleppar fyrir mömmu

Mamma getur verið svo fyndin. Hún hefur lengi ætlað að hekla sjálf nýja pottaleppa þar sem uppáhalds pottalepparnir hennar voru orðnir svo slitnir. Lúmska dóttir hennar ég fann uppskrift að alveg eins pottaleppum og ég heklaði þá fyrir hana, mamma var rosa ánægð með gjöfina. 
Þegar ég síðan kom næst í heimsókn til hennar hanga lepparnir á áberandi stað en mamma notar þá aldrei því eins og hún orðaði það "þá eru þeir spari". Hún notar þess í stað þessa slitnu, hahahahaha :)

Spari-pottalepparnir hennar mömmu:


Tuesday, May 31, 2011

Dúkka

Svo virðist sem ég hafi gleymt að blogga um þetta krútt... Þetta er önnur uppskriftin sem ég geri alveg sjálf.

Ég er að hugsa um að selja svona dúkkur. Verð fyrir sérpantaða dúkku er 4000 kr, þá er hægt að óska eftir ákveðnum hárlit og velja lit á kjólinn. Svo stefni ég á að gera stráka dúkku líka, hún verður í smekkbuxum. Það verður þá auðvitað hægt að fá stelpu dúkku í smekkbuxum, og strák í kjól ef einhver óskar eftir því ;)


Tótimar kallar þessa alltaf Freyju dúkku:

Thursday, March 24, 2011

Heklaður kjóll

Ég var að enda við voða krúttlegan kjól fyrir Freyju
Ein mynd af bakhlutanum

Þessi uppskrift er úr blaðinu Crochet Today (maí/júni 2010)


Oggu-poggu kreisí...

Ok, ok. Ég ætlaði örlítið að snyrta á mér toppinn þegar ég kom úr sturtunni í gær, ég geri það oft. Þegar ég var búin að klippa hann þá langaði mig svo ferlega að laga restina af höfðinu svo ég hélt áfram. Þegar hluti af hárinu hægra megin var horfið þá fór ég að svitna svolítið, Hvað Var Ég Búin Að Gera?!? En það þýddi ekkert að pæla í því, ég varð að klára það sem ég var byrjuð á. Alla vega, þá endaði ég svona (svo sem skítsæmileg klipping miðað við að hún er framkvæmd af sjálfri mér við barðherbergisspegilinn og með Föndurskærum, hahaha)

Kreisí Árný:


Kona getur orðið svolítið kofaveik á því að vera of mikið ein heima að læra... Kúkú ;)

Wednesday, March 2, 2011

Heklubönd

Hæ, hó.

Er ykkur ekki kalt á eyrunum? Þá eru hér voða hlý og kósý Heklubönd sem ég hef búið til :)

Ef einhver hefur áhuga á að eignast eitt slíkt þá kostar það 2500 kr.
Hafið bara samband, gott væri að senda mér póst á hekla_9@hotmail.com .
Það er líka hægt að athuga með sérpantanir ef einhverjir ákveðnir litir heilla meira en aðrir :)















Og svo er ég með nokkur hálf-kláruð, set hér eina mynd af þeim


Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...