Showing posts with label dagdraumar. Show all posts
Showing posts with label dagdraumar. Show all posts

Thursday, August 19, 2010

Líf svo ljúft

Fallega mynd
Lítil stelpu-jólatré. Ég á eitt.
Glæsilegt.

Kúr
Allt að ganga upp, allt í kring.
Síðustu stundir sumarsins
Ég á svona í vaskinum mínum. Kannski þegar ég verð stór?
Miklar kjólapælingar þessa dagana
Sæta kisa
Skólabókalistar. Kósý. Hlakka svo til skólans :-)
... og já svona í tilefni alls


ég held ég verði væmnari með hverjum deginum sem líður. Ef það var þá hægt.

Allar myndir af weheartit.com nema sú af blúndunni, ég tók hana.

Thursday, July 29, 2010

Fjársjóður

Úffff.. góður dagur í dag.

Árný hringdi í mig og var þá búin að redda mér nýju hleðslutæki, alveg frítt. Enda ekkert annað sem kom til greina. Það var gleði!


Erlu Maren gekk agalega vel í aðlögun á leikskólanum, lagði sig og allt! Hvílíka gleðin.


Hoppaði eftir vinnu inní nytjamarkaðinn og kom sæl og glöð út með þessi 3 pör. 1200 kall.


En mesta gleðin verður þó að teljast þegar ég keyrði inní plássið á Stokkseyri og sá þar æðislega fallegt, eldgamalt barnarúm sem ég fékk að eiga (það hefði víst lent á haugunum annars..) Ég var ekki bara glöð heldur líka maðurinn sem gaf mér það. Fannst æði að einhver vildi eiga það. Svo allir voru glaðir þar!


Myndavélin var ekki með í för en ég sýni ykkur mynd fljótlega.
Það þarf reyndar að gera fullt fyrir þetta grey.. en það verður sko geðveikt þegar ég er búin að gera við það!



Enn einn fjársjóðsfundur dagsins er ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum sem ég fann hér

Ljóðið heitir ljóðabréf til lítillar stúlku - nokkur erindi þar minna mig svo á hana Erlu mína :-)

Gaman er að ganga á fund við gleði þína
og láta hana á sálu sína
sumarlangan daginn skína.

Það er líkt og ljósið streymi úr lófa fínum,
þegar þú hvítum höndum þínum
hjúfrar upp að vanga mínum.

Og þá glingrið grípur þú úr gullastokkum
björt og sæl, í bláum sokkum,
bragar af þínum silkilokkum.

Þegar ég horfi í þessi augu þýð og fögur,
finnst mér eins og láð og lögur
leysist upp í kvæði og sögur.

Upp á hól þú hleypur þar og hoppar niður:
kringum þig er frelsi og friður,
fuglar, blóm og lækjarniður.

Ríktu þar á rauðum kjól, mín rós og lilja:
þar til allar þjóðir vilja
þína veröld sjá og skilja.
Þetta eru svo babúskurnar hennar Erlu sem ég fann í jólahúsinu á Laugaveginum. Fallegar eru þær.

Tuesday, June 29, 2010

Til fyrirmyndar

Mikið eru svona hlutir skemmtilegir! Fór í dag á N1 og fékk mér góðan bunka af bréfum, skrifaði á þau öll, til fólks sem ég þekki. Ég er svo heppin að hafa fyrirmyndarfólk allt í kringum mig.  Það verður gaman að skondrast út á pósthús á morgun með þetta. Þetta er svo krúttlegt. hehe


Tókuð þið þátt?

Annars þá er ég að fara að senda út fleira á næstu dögum til vinkvenna minna. Ég er frekar spennt fyrir því. Og hlakkar til að sýna ykkur hér líka :-)

Og já, ekki gleyma gleðigjöfinni hér fyrir neðan.

Monday, June 28, 2010

Dansi dansi...









Bráðum kemur betri tíð 
með blóm í haga og bleikar kýr 
sem dansa fram á nótt.   

.. það hlýtur að vera þessi tími núna, sem er talað um í laginu... Dásamlega, dásamlega sumar, með sitt milda og góða veður.



Og ég verð að komast að dansa... Ekki seinna er núna. Mánudagar eru góðir dagar til að dansa.

Út á gólfið ekkert stress
Já út á gólfið vertu hress
Já nú er kominn tími til að dansa...

-Gylfi Ægisson ;-)

Monday, March 22, 2010

Ef lífið væri eins og söngvamynd..





















.. væri held ég allt miklu betra. Með öllum ballöðunum og stuð lögunum.


Þetta væri mitt lag ef dagurinn hefði verið tekinn upp hjá mér ;-) Hvað væri lagið ykkar? (endilega setjið youtube link).




2 skemmtilegar klippur sem gefa manni hugmynd um hvernig lífið gæti verið ;-)









Monday, February 22, 2010

Grænt






Allar myndir héðan

Thursday, February 18, 2010

Kærleikur


Kærleikur trúir öllu
kærleikur vonar allt
kærleikur hann umber allt 
og fellur aldrei úr gildi.

-Jóhann G. Jóhannson

Þó það sé ljúft að veturinn sé að verða búinn þá finnst mér það svolítið leiðinlegt því þá þarf ég að hvíla uppáhalds diskinn minn, Vetrarljóð með Ragnheiði Gröndal.....

Monday, February 8, 2010

Gleðilegan mánudag

.. Vona að allir eigi góðan mánudag!
Veðrið er í það minnsta fallegt í dag.

Ég er með nokkur skemmtileg verkefni á leiðinni..
Svo eru enn fleiri í kollinum sem bíða frekari útfærslu.

Nokkrar fallegar í tilefni dagsins:
Myndirnar má finna hér, ásamt fullt fullt af öðrum! Gæti eytt deginum í að skoða.



Te er gott úr sætum bolla



Bráðum kemur betri tíð

með blóm í haga og bleikar kýr 
sem dansa fram á nótt. 


Svavar Knútur er bestur á svona dögum <3

Saturday, January 30, 2010

Föndurherbergja madness

Ókey, hver gæti hugsað sér að búa til allskonar fallegt í svona rými? Þetta er meðal annars það sem ég fæ útúr leitinni á goggle þegar ég bið um "crafting studio" Þvílíka litadýrðin!












Þessar myndir eru svo frá Elsí, úr stúdíóinu hennar





Hugurinn minn kemst vel á flug við að skoða þetta.

Mér finnst að við systurnar og mamma ættum að eiga svona fallegt föndurathvarf heima á Tálknafirði. Dílum við ekki bara við pabba um að taka yfir bílskúrinn?

 

 

… og annars… Þá er hænsnakofinn víst laus núna ;-)

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...