Showing posts with label diy. Show all posts
Showing posts with label diy. Show all posts

Monday, May 21, 2012

Dagatal DIY

Ég bjó til dagatal til þess að koma skipulagi á bloggpóstana mína. Fannst það svo krúttlegt að mig langar til að sýna ykkur og segja frá því hvernig ég gerði það.



Það sem ég notaði var A4 blað, reglustika, penni og skrautlegt límband úr Tiger.

Ég byrjaði á því að strika lóðréttar línur með penna og notaði reglustiku til þess. Límdi svo með límbandi  til að klára að gera rammana.  Svo er bara að merkja inn dagana og setja skipulagið inn.


Og svo ein blómamynd ;-)


Það er enginn dagur betri til að setja upp skipulag en einmitt mánudagur! :-)


Kv. Dúdda*

Saturday, March 10, 2012

Laugardagsföndurstund

Gott að byrja laugardaginn á því að kíkja í DIY albúmið sitt  á Pinterest og ákveða þar hvað föndra eigi í dag. 
Hvernig væri að safna öllum dýrum heimilisins saman og raða þeim upp á hillu. Njóta sín betur þar en ofan í dótakassa
Örugglega lítið mál að föndra svona lista til að hengja upp á vegg 
Líma tréstafi á striga og mála. Hægt að leika sér með það :-)
Spreyja kökuform og skella blómum í 

Gleðilegan föndurdag!

Monday, January 9, 2012

DIY


Tuesday, October 4, 2011

Stimplar

Ég varð hálf sjúk þegar Dúdda bloggaði um þennan kjól um daginn


Hér eru leiðbeiningar um það hvernig er hægt að skera út sína eigin stimpla, alveg týpískt að ég þurfi að finna mér enn eitt föndrið sem ég VERÐ að prófa ;)



Svo fann ég nokkra skemmtilega stimpla:







Svala - þessi er nú ansi sæt, mig langar nú að panta þessa... 


Thursday, June 2, 2011

DIY - innblástur



Tuesday, March 1, 2011

Afmæliskort DIY

Elsku Magga vinkona mín á afmæli í dag.

Í gær föndraði ég svolítið öðruvísi kort fyrir hana.

Það sem ég notaði var:

pappír í nokkrum litum
band
skæri 
nál
umslag 
límband 
og lítil dúlla á endann.
Ég byrjaði á að klippa út form, ég gerði litlar veifur em hægt er að gera hvað sem er. Skrifaði svo skilaboðin á veifurnar, batt dúlluna á endann.
Límdi svo endann í botninn á umslaginu.
Hinn endann festi ég svo efst í umslagið
Kom þessu svo fyrir í umslaginu og lokaði


Svo voru skilaboðin dregin upp og vöktu mikla lukku :-)

Ég fékk hugmyndina hér

Þessi kanna/blómavasi fylgdi svo kortinu

Monday, February 28, 2011

DIY garland og smá fjársjóðsleit

Það sem ég gerði var að prenta út setningu. Dró svo stafina upp í gegnum efni og spreyjaði svo stafina með lakkspreyji. Þá stífnuðu þeir upp. Klippti svo stafina út og þræddi þá upp á band. 

ísí písí! :-)
Og nú er ljóti tómlegi veggurinn fyrir ofan hjónarúmið okkar allt í einu orðinn dásamlegur Mitt er þitt og hjá mér áttu heima
Hugmyndina fékk ég hér

Kom svo við í Góða hirðinum á leið útúr bænum í dag. Þar biðu þessar krúttlegu dúllur eftir mér.

Og líka þessir efnisbútar. Annar þeirra verður notað mjög fljótlega :-)



Wednesday, January 26, 2011

Heimatilbúið "kort" DIY

Litla hélt upp á tvítugsafmælið sitt um daginn. Ég bjó til kort fyrir hana bara úr hlutum sem ég átti til hérna heima.
Askjan er askja utan af jólaskrauti ( Ég VISSI að ég ætti eftir að nota hana ;-) )
Ég skrifaði aðalkveðjuna á blað sem ég rúllaði upp 
Svo málaði ég með vatnslitum á blöð úr gamalli bók.



Daman er á leið í heimsreisu..



Svo varð hún auðvitað að fá trönu úr gulli




Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...