Agalega fín!
Showing posts with label börn. Show all posts
Showing posts with label börn. Show all posts
Thursday, November 24, 2011
Hárbandabrjálæði
Author: Kristrún Helga(Dúdda)
|
at:09:09
|
Category :
börn,
Dúdda-föndur
|
Friday, January 29, 2010
Tótimar fer til tunglsins
Author: Árný Hekla
|
at:23:15
|
Category :
Árný-föndur,
börn
|
Á leikskólanum hans Tótimars skiptast börnin á um að fara heim með hundinn Kát (bangsa, ekki lifandi hund...) og síðan skrifa foreldrarnir um heimsóknina í þar til gerða bók sem fylgir Kát hvert sem hann fer. Þegar komið var að Tótimar að fá Kát í heimsókn langaði Magga til að föndra svo lítið við söguna og endaði hún svona:
Fyrir þó nokkuð löngu síðan kom Kátur í heimsókn til Tótimars í Stúfholtið. Þá kumpánana langaði til að gera eitthvað spennandi saman svo þeir fóru í rauðu geimflaugina hans Tótimars og þutu út í geimi. Tótimar vissi alveg hvert hann ætlaði að fara með Kát, en það var til TUNGLSINS! Enda hefur hann gríðarlegan áhuga á því þessa dagana og hann langaði til að skoða það betur.
Þegar þeir voru lentir á tunglinu skelltu þeir sér út í gönguferð og hittu Tinna, Kolbein kaftein og Tobba sem þar voru í tunglgöngu. En Tótimar og Kátur höfðu gleymt geimbúningunum sínum heima og varð fljótt ískalt. Tótimar knúsaði Kát til að hlýja honum og svo flýttu þeir sér aftur í geimflaugina og flugu heim.
Þessi ferð tók langan tíma því það er svo rooooosalega langt til tunglsins, og þess vegna var Kátur aðeins of lengi í heimsókn hjá Tótimar en vonandi kom það ekki að sök.
Þegar Tótimar og Kátur voru komnir heim sögðu þeir Freyju Siggu, litlu systur, frá ævintýraferð sinni og lofuðu henni því að hún fengi að koma með í næstu ferð.

Svo er sagan lesin fyrir öll börnin á deildinni. Tótimar var mjög montinn þegar hann fór á leikskólann með bókina í morgun :)
Tótimar og Kátur
Fyrir þó nokkuð löngu síðan kom Kátur í heimsókn til Tótimars í Stúfholtið. Þá kumpánana langaði til að gera eitthvað spennandi saman svo þeir fóru í rauðu geimflaugina hans Tótimars og þutu út í geimi. Tótimar vissi alveg hvert hann ætlaði að fara með Kát, en það var til TUNGLSINS! Enda hefur hann gríðarlegan áhuga á því þessa dagana og hann langaði til að skoða það betur.
Þegar þeir voru lentir á tunglinu skelltu þeir sér út í gönguferð og hittu Tinna, Kolbein kaftein og Tobba sem þar voru í tunglgöngu. En Tótimar og Kátur höfðu gleymt geimbúningunum sínum heima og varð fljótt ískalt. Tótimar knúsaði Kát til að hlýja honum og svo flýttu þeir sér aftur í geimflaugina og flugu heim.
Þessi ferð tók langan tíma því það er svo rooooosalega langt til tunglsins, og þess vegna var Kátur aðeins of lengi í heimsókn hjá Tótimar en vonandi kom það ekki að sök.Þegar Tótimar og Kátur voru komnir heim sögðu þeir Freyju Siggu, litlu systur, frá ævintýraferð sinni og lofuðu henni því að hún fengi að koma með í næstu ferð.

Svo er sagan lesin fyrir öll börnin á deildinni. Tótimar var mjög montinn þegar hann fór á leikskólann með bókina í morgun :)
Tuesday, January 26, 2010
Listaverkin lifna við
Author: Árný Hekla
|
at:22:16
|
Category :
Árný-föndur,
börn,
saumað,
útsaumur
|
Nú bíð ég spennt eftir að Tótimar fari að teikna höfuðfætlur eða aðrar fígúrur!
Það er hægt að gera ansi margt fallegt úr listaverkum barnanna, til dæmis búa til eitthvað í þessum dúr:
Það er hægt að gera ansi margt fallegt úr listaverkum barnanna, til dæmis búa til eitthvað í þessum dúr:
http://belladia.typepad.com/bella_dia/2006/03/embroidered_chi.html
http://belladia.typepad.com/bella_dia/2005/10/halloween_embro.html
Eða jafnvel sauma knúsidýr eftir teikningunum!


http://craftsanity.com/?p=2517
http://greetingarts.typepad.com/greetingarts/2006/05/pinkmoufth.htmlEf fólk treystir sér ekki til að sauma sjálft er jafnvel hægt að láta aðra sjá um vinnuna fyrir sig, það eru til fyrirtæki sem búa til fígúrur eftir pöntun:
http://www.childsown.com/index.html
http://www2.shidonni.com/default.htm
Ég bjó til þessa tvo fyrir skólaverkefni í fyrra og þeir eiga núna heima í bangsafötunni hans Tótimars:
Subscribe to:
Posts (Atom)



