Wednesday, June 22, 2011

Ferðalög

Ég elska ferðalög
Pakka óþarflega miklu niður
Raða fínt í bílinn sinn
Finna góða tónlist og leggja í hann!


Best samt þegar áfangastaðurinn er Tálknafjörður :-)

Ætla að fyllast þar af orku næstu daga með uppáhalds litlunum mínum <3

Tuesday, June 21, 2011

Blómahaf

Ég var ekkert að hata öll blómin sem fylltu heimilið um hvítasunnuhelgina





Lovlí!! :-)

Saturday, June 18, 2011

Skírn

Við létum skíra litlu 12. júní sl.Og hér er hún Ragna Evey. Bara dásamleg :-) 

Magga vinkona var svo yndisleg að tína fyrir mig blóm til að skreyta salinn með. Það kom fátt annað til greina en að setja blómin í barnamatskrukkur ;-)
Ég bjó svo til svona veifur á nokkrar krukkur sem voru notaðar undir kerti..



Útskriftardressið ;-).

Mamma mín var svo góð að gefa mér blúndu og hjálpa mér að sníða og sauma úr henni kjólÁrný systir reddaði svo fatalit

Og blúndan varð svona skemmtilega appelsínugul
...Liturinn fór svo reyndar nánast allur úr þegar blúndan var skoluð en varð svona laxableik..


Ég saumaði svo blátt skáband á kjólinn og þetta var útkoman

Ooog svo útskriftarsysturnar saman :-)

Friday, June 17, 2011

Hjarta þristur

Gerði þetta fyrir elsku Alla þegar hann átti afmæli um daginn. Hann spilar í treyju númer 3 í fótboltanum og er hjarta þristurinn minn ;-)

17. júní

Dagurinn í dag átti að vera brúðkaupsdagurinn okkar Arilíusar. En þegar við vissum um laumufarþegann flýttum við brúðkaupinu og giftum okkur fyrsta dag vetrar síðasta vetur. Hér eru myndir frá þeim degi sem var algerlega æðislegur!


En í tilefni dagsins langar mig að skella inn nokkrum myndum úr fínum brúðkaupum. Og vil í leiðinni hvetja allar ógiftar systur mínar og vinkonur til þess að drífa í þessu svo ég geti fengið að taka þátt í undirbúningnum;-)

Set svo inn þetta fallega myndband frá brúðkaupinu hjá Elsie á ABeautifulMess. Bara krúttlegt og skemmtilegar hugmyndir líka :-)


Elsie & Jeremy | May 15th 2011 from Goodwin Films on Vimeo.

Thursday, June 16, 2011

Litlasprengja - Innblástur



Mannstu Árný? :-)

Wednesday, June 15, 2011

Fallegu barnaherbergin

Mér finnst alltaf jafn gaman að skoða falleg barnaherbergi. Vona sérstaklega að óléttu vinkonur mínar hafi gaman af þessu :-) Hér eru nokkur skemmtileg :-) 


Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...