Ég heklaði Litla Kall í fyrradag (Tótimar var mjög ákveðinn um að hann héti "bara Kall"). Svo í morgun var hann í bútum og ég sýndi Tótimar það. Við tróðum saman í hann og svo sýndi ég honum hvernig ég saumaði bútana saman. Honum fannst þetta mjög áhugavert og fylgdist vel með.
Ég fann uppskriftina á
Ravelry og (Það þarf reyndar að skrá sig til að sjá hana en það kostar ekkert og þar eru FULLT af hekl- og prjónauppskriftum)

Hann var nú ansi ánægður með hann Litla Kall
2 comments:
Krútt kallar :-)
oh.. það ættu allir að eiga svona lítinn kall. Ég myndi skýra minn herra Hjartavermir
Post a Comment