

Árið 2010 var mér einstaklega gott. Fullt af þáttum sem spila saman þar en þá hlýtur brúðkaupið núna í haust að standa algerlega upp úr :-)
Við byrjuðum með systrseiðs síðuna snemma á árinu. Hún hefur verið mikil uppspretta gleði hjá mér. Auk þess sem hún hefur hvatt mig til að gera hlutina, ekki bara hugsa um þá ;-)


Ég ætla að setja mér einhver markmið og óskir fyrir árið 2011. Og pósta þeim kannski hér inn á morgun.


Allavega nóg spennandi framundan. Nýtt barn og svo klára ég námið mitt í vor :-) Erla Maren heldur svo alveg örugglega áfram að vera sama uppspretta gleði sem hún hefur verið hingað til. Það verður gaman að fylgjast með henni áfram :-)
En annars óska ég þess að árið 2011 færi ykkur öllum gleði og flottheit. En munum að ekkert kemur af sjálfu sér ;-) Svo upp með andann!
0 comments:
Post a Comment