Hér koma nokkrar vel hristar og hrærðar myndir. Ákvað samt að deila þeim með ykkur þar sem pilsið sem er í aðalhlutverkinu er svo asskoti sætt!
Við mæðgur saumuðum semsagt eitt stykki pils á Laugardaginn en efnið sem við notuðum var bútur sem hafði verið klippt af pilsi sem mamma stytti fyrir Sigríði. Ótrúlega sniðugt að nota það í pils á lítið stelpuskott finnst mér :-)
Svona lá rófunni mikið á að fá nýja pilsið - hún var barasta komin í verkið sjálf..
Mikið kát með fína pilsið :-)
2 comments:
Flott pils hjá ykkur, það er svo gaman þegar börnin fara að taka þátt í saumaskapnum.
úpps, gleymdi að skrifa nafnið minn neðst.
María
Post a Comment