Saturday, December 11, 2010

Pínulítið vandræðalegt..

... en ég er dúkkusjúk!!

Og mig langar svo í mína eigin Blythe dúkku. Þær eru svo fallegar og það er hægt að búa til svo margt fallegt fyrir þær. En þessar dúkkur kosta líka sitt.


En núna er Littlest Pet Shop farið að selja míní-Blythes með litlu dýrunum. Og þær eiga ekki að vera eins dýrar. 

Mikið væri ég til í allavega eina svona. Kannski eina fyrir mig og eina fyrir Erlu? ;-) 
Hér er svo hægt að sjá stærðarmuninn. Þær eru bara ponsur :-)

Og dásamlegt dúkkuhús í hillu.

Æj ég fann svo flott blogg..

.. .  sem ég bara get ekki beðið með að deila.
Ég á að vera að læra, en hey, ég verð nú líka að taka mér pásur ;-)

En það eru s.s. 2 systur sem eru með þetta blogg og önnur þeirra er greinilega rosalega dugleg að sauma á dóttur sína föt. Og þau eru ekkert lítið falleg, allavega flest þeirra.
Ooooog það besta er, er að hún er með rosa góðar leiðbeiningar með :-)


Thursday, December 9, 2010

Photobooth DIY

Ég elska photo booth hugmyndina!  Við Alli ætlum að vera með smá partý hér heima núna rétt fyrir jól og held ég að þá sé alveg tilvalið að framkvæma svona skemmtilegt! Hér eru nokkrar skemmtilegar hugmyndir af photobooth, DIY-um. Misflóknar í framkvæmd þó..

Hægt að fá allskonar hugmyndir að bakgrunnum hjá Color me Katie.

Mér finnst þessi geggjuð. Karton hengt upp á vegg.. Einfallt og ódýrt! :-)

Og svo allskonar svona krútterí

Flott að nota efni í bakgrunn
Ramminn góði..
...
Hægt að hafa allskonar leikmuni ;-)
...
Til að gera með börnum - hægt að prenta hér út þessi form
Blúndur, blúndur, blúndur <3 style="text-align: center;">

Týndi linknum á þessa.. En hér er önnur með sömu pælingu, og sýnt hvernig þetta er búið til ;-)


En ég held að sigurvegarinn sé fundinn. Einfallt, ódýrt og jólalegt.

Svo er bara spurning um að redda sér fullt af skemmtilegum leikmunum fyrir skemmtilegheitin .

Wednesday, December 8, 2010

Tilviljanakennt - jólafínt

Fallegar föndraðar snjókúlur - DIY 
Að leyfa fallegum jólakortum að njóta sín
Barnaherbergið skreytt
Ó svo skemmtileg hugmynd af mynd!


DIY jólakúla úr pappírMér finnst hún reyndar fallegri svona..

Eða jafnvel bara svona...

Gæti verið fallegt að búa til garland úr svona dásemdum :-)

Nokkrar fleiri hugmyndir

Heimagerður pappír. Mamman gerir útlínur og börnin lita.
Annar heimagerður. Pappír, málning og legókubbar
Ál-dós verður tromma
Gjafapoki verður jóltré
Fullt af hugmyndum í þessum stíl hér
Leyni- gjafamiði

.. Innpökkunarhugmyndir ..

Ég má ekki svíkja gefin loforð ;-)

Ætla svo að setja inn annan póst með hugmyndum af innpökunarmöguleikum sem hægt er að gera með börnum


Einfallt og fallegt
Skraut úr bol

Þessar tvær hugmyndir héðan
Blúndu spreyjun á dagblöð
Fleiri álíka hugmyndir
Ýmislegt frá heimilinu notað
Skemmtilegt
Gjafapokar úr dagblöðum. Leiðbeiningar hér
Ísspítur- Væri hægt að skrifa svo frá og til á þær ..
Hún kennir líka hvernig á að föndra þessa stjörnu <3 onblur="try {parent.deselectBloggerImageGracefully();} catch(e) {}" href="http://www.designspongeonline.com/wp-content/uploads/2010/12/intro-photo.jpg">Ó svo fallegt! Klikkið hér og sjáið enn meira í þessum anda

Wednesday, December 1, 2010

Fyrsti desember

Húsbóndinn fékk sitt jóla dagatal. Þetta eru 24 miní-bréf, hengd á snúru út í glugga. Fann þessa rosa fínu klemmur í Tiger um daginn svo ég ákvað að smella í eitt svona dagatal.

Haldiði að það sé ekki dásamlegt að byrja daginn á að fá eins og eina ástarjátningu, hrós eða loforð í svona bréfi? Mér allavega sýndist það í morgun á mínum manni ;-)

Það sem ég þurfti var bréf, skæri, penni, band og klemmur.

Sýni ykkur svo einn sætan pakka sem ég pakkaði inn fyrir litlu jólin hjá vinkonunum.
Einfallt og gott.

.. og svo hlýt ég að fara að smella inn innpökkunarhugmyndunum ;-)
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...