Tuesday, March 23, 2010

Neyðin kennir naktri konu að klippa

Ég er frekar stressuð týpa og var ekki alveg viss um að ég legði í að snurfusa Magga þegar hann bað mig um það... En því ekki að prófa? Það er alltaf hægt að raka allt af ef eitthvað klikkar...

Magnús hinn hárfagri, kominn tími á snyrtingu?
Hálfnað verk þá hafið er. Telst það með að vera með í Mottumars þegar maður er með alskegg? Hvað finnst ykkur?
Magnús hinn snyrtilegi
Þarna spöruðust einhverjar krónur, nú er bara að bíða eftir "viðbrögðum á götunni"...
Og já, í hvað á þá að eyða krónunum?

8 comments:

Erna DB said...

Flott hjá þér kona góð! M.a.s Ingó ofurklippari var að fíla þetta!!Og nú geturu eytt krónunni í föndurbækur ;o)

Anonymous said...

Vá flott! Ég held ég myndi ekki geta gert'etta svona vel... schnilld :)
segi sama og Erna... Föndurbækur! hehe

kv.
Berglind Z

Kata said...

Nei mér finnst að hann þurfi að raka allt nema mottuna svo þetta sé mottumars ;) hehe
En geðveikt flott klipping hjá þér :)

kv. Kata

Tobba on March 23, 2010 at 9:09 AM said...

Glæsilegt hjá þér!! Ég myndi sjálf aldrei þora þessu hahaha, en þú ert hetja og ekki af ástæðulausu! Kallinn bara flottur!

Unknown on March 23, 2010 at 10:13 AM said...

Glæsilegt, ég held þú sért svona kona sem getur allt..!

OFURINGA on March 23, 2010 at 1:55 PM said...

Glæsilegt! Ætla að sýna Óskari þetta svo hann fari nú að hvíla kívíklippinguna sína.
Ég myndi fara og fá mér búlluborgara í tilefni dagsins. En það er líka bara af því að ég hef ekki fengið einn slíkann í háa herrans tíð!
Annars eru föndurbækur/matreiðslubækur góður hlutur að eiga. Ég er að fara að byrja að vesenast við vattarsaum...á núna nál og leiðbeiningabók...vantar bara garn og þá verð ég klár :)

Guðrún Lind on March 23, 2010 at 2:18 PM said...

Ég spyr bara: varstu nakin þegar þú klipptir hann? ;)
Óháð því þá er þetta vel gert! En ég held að mottan mundi fara mun betur með þessari heima-klippinug :)
Og hiklaust þá ætti seðillinn að fara í eitthvað föndur!

Kristrún Helga(Dúdda) on March 23, 2010 at 9:22 PM said...

Vel gert systir góð! :-)

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...