- Ég er frjáls eins og fuglinn, flogið næstum ég gæti.
- Mér er ekkert til ama flest nú eykur mér kæti.
- Alsæll er ég því orðinn, ekki kann ég mér læti.
- Ég er frjáls, ég er frjáls.
- Förum út til að fagna, lyftum freyðandi skálum.
- Gleði og ánægju aukum, öllum leiðindum kálum.
- En þó alltaf við hrópum, þegar einhvern við skálum.
- Ég er frjáls, ég er frjáls.
- Ég er frjáls, ég er frjáls. Frjáls eins og fuglinn er,
- frjáls og ég skemmti mér. Ég er frjáls.
- Ég er frjáls, ég er frjáls. Frjáls eins og fuglinn er,
- frjáls og ég skemmti mér. Ég er frjáls.
- Ég er frjáls, ég er frjáls. Frjáls eins og fuglinn er......
-Pétur Bjarnason














... Ég held ég skuldi nánast öllum sem ég hef hitt síðustu vikurnar afsökunarbeiðni fyrir vælið í mér... Svo Sorrrrý! ;-)
2 comments:
Klára, duglega systir! Ekki efaðist ég ;)
Og ég náði mínu, þrátt fyrir að hafa lært allt efni vetrarins á 2 dögum :)
Þú ert ofurkona!
Þessar myndir eru allar svo frábærar.. maður fær bara orku af því að horfa á þær!
Post a Comment