Monday, September 27, 2010

Gult hjarta

Í vor sendi ég vinkonum mínum gul, hekluð hjörtu. Og bað þær um að koma þessum hjörtum einhverstaðar fyrir, taka mynd af því og senda mér.

Þær voru held ég flestar voða ánægðar með hjörtun sín en ég hef hinsvegar ekki margar myndir fengið :-)

Hér eru þær sem ég er búin að fá:

Erla Maren mín fékk að sjálfsögðu fyrsta gula hjartað enda besta vinkona mín. Hennar gula hjarta er næla. Svo sæt :-)
Sonja hengdi sitt hjarta, ásamt umbúðunum upp á ískaáp.
Árný setti sitt á stein. Svo sniðug! :-)
Og Þórdís sæta er með sitt sem skraut í hárinu :-)

Takk elsku stelpur! :-*


Hvers virði er að eignast allt 
í heimi hér 
en skorta þetta eitt 
sem enginn getur keypt. 
Hversu ríkur sem þú telst 
og hversu fullar hendur fjár 
þá áttu minna en ekki neitt 
ef þú átt engan vin.

-Ólafur Haukur Símonarson 

0 comments:

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...