Thursday, September 23, 2010

Ó þú fallega haust, vertu velkomið!

Haust er held ég best

Kúr þegar að rignir..

Litadýrðin

Myndir af börnunum í haustlitunum. Ég fór út í gær með Erlu Maren til að taka myndir. Náði held ég fimm myndum áður en vélin varð batterýslaus, ljúfa líf. Sem betur fer koma samt fleiri góðir dagar..
Te og kakó í fallegum bollum


Kertaljós, rómantík, föndur, bakstur og kúr með teppi, tónlist sem má bara hlusta á á haustin, diskurinn sem ég er búin að bíða eftir að hlusta á í allt sumar, vetrarljóð með Ragnheiði Gröndal.

Norðurljós 

Ég sat um kvöld og horfði hátt 
á himinsblámans djúp, 
og augun drógust dræmt í kaf 
í dimman næturhjúp. 
Ég vildi horfa húmið burt 
og heiðið bak við sjá. 
-Og ef til vill var augasteinninn minn 
óskasteinninn þá. 


Ég vildi sigra sortans mátt 
og sjá í gegnum hann, 
því einhver þrá til æðra lífs 
í æðum mínum brann. 
Ég þráði meira,meira ljós 
í mína veiku sál; 
ég þráði glóð frá Guði sjálfum, 
-glóð sem væri ei tál. 


Þá kviknaði allt í einu snöggt 
á undralampans kveik. 
Og sjá,hin björtu blysin Guðs 
sér brugðu í fagran leik. 
Þau þutu víða vegu geims 
og vóðu blámans hyl, 
og leifturhraðar litasveiflur 
lýstu jarðar til. 


Að lýsa þeirra Drottins dýrð 
ei dauðleg tunga kann, 
en helga nálægð himinsins 
mitt hjarta þegar fann. 
Og lúin sál mín lagðist þar 
við lífsins bjarta ós, 
og svalg á einu augnabliki 
öll þau Norðurljós. 


Þá barnið hló í brjósti mér, 
og birtan varð mér hlíf. 
Ég heyrði Drottins hjarta slá, 
-þá hvarf mér dauði og líf. 
Ég sá við undralampans ljós 
á leifturhraðri ferð: 
Úr ótal slíkum augnablikum 
eilífðin er gerð. 

-Jóhannes úr Kötlum

Gerist ekki fallegra!

Í kvöld koma fyrstu myndirnar af gulu hjörtunum :-)

2 comments:

Anonymous said...

Ohh, efsta myndin minnir mig á hvað það er gott að vera í sundi í logni og rigningu, helst alein :)

kv. Árný Hekla

Eva væmna said...

Dásamlegt!
Elska haustið! og þig!

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...