Ég vona að þetta sé líka haustið þegar hæfileikaríku og duglegu vinkonur mínar fari sjálfar að blogga - eða já, fari aftur að blogga ;-)
Skemmtilegast er auðvitað að skoða síður sem eru reglulega uppfærðar - Þessar skoða ég á hverjum degi:
A Beautiful mess - Elsie föndurdíva ræður hér ríkjum og bloggar um tísku, föndur og almenn krúttlegheit. Gifti sig í maí og fékk mig til þess að langa til þess að gifta mig aftur ;-) Rekur búð í bænum sínum og er farin að hanna sín eigin kjólalínu. Þessi gella setur sér markmið og nær þeim og við fáum að fylgjast með ferlinu :-)
Úr brúðkaupinu
Bleubird vintage - fáum þar að kíkja inn í líf ungfrú James og fjölskyldu - allt gott og krúttlegt þar :-)
Design sponge online - DIY miðvikudagarnir og fyrir og eftir fimmtudagarnir eru eðal en þess fyrir utan eru þarna ótrúlega skemmtileg innlit í flottar íbúðir - fjölbreyttari innlit en maður sér á öðrum síðum. Hef meira að segja einstaka sinnum séð innlit í íslensk heimili. Gaman gaman.
Þessar 3 síður eru í sérflokki hvað uppfærslur varðar!
Af íslenskum skoða ég mikið
Augnablik alveg ótrúlega fallegar ljósmyndir og einstaka föndur.
Óskalistinn - geggjuð barnaherbergi og hugmyndir en Bergrún Íris sem er konan á bak við síðuna heldur einnig úti innlit-útlit blogginu sem er alltaf gaman að fylgjast með :-)
Nýlega rakst ég svo á Handóð-bloggið og sá margt skemmtilegt þar. Ótrúlega flottar hekluðu krukkurnar. Fyrir svona krukkuóða konu ;-)
Líka gaman að fylgjast með Skreytum hús blogginu en hún er einstaklega dugleg að setja inn færslur og er greinilega rosa dugleg að gera fínt í kringum sig :-)
Svo eru tvö blogg sem ég hef haft gaman af en ekki hefur mikið gerst á í sumar en það er Smátt og Smátt bloggið
Aðeins of fallegt ennisband !
og síðan hjá Guðnýju Brá.
Fallegur kjóll sem hún saumaði á litlu sína - En á síðunni eru líka undurfallegar ljósmyndir.
Ef þú veist um eða ert með skemmtilegt blogg sem við megum ekki missa af, endilega segðu okkur frá í kommentunum. Við getum þá bætt því við alla linkana hér til hliðar :-)
4 comments:
Já haustin eru æði. Það verður allt extra yndislegt þá finnst mér.. Kannski maður taki upp á því að blogga í orlofinu? Hvur veit!
Stórt Like á það Eva mín! :-)
Ég held samt að ég sé of spéhrædd með það sem ég geri.. B)
Takk fyrir plöggið :) Gaman að heyra að þú fylgist með síðunni minni, ég lofa að bráðum fara blogghjólin að rúlla. Er að standa í flutningum og framkvæmdum, bæði á heimilinu og blogginu - ég lofa skemmilegu bloggi von bráðar!
Post a Comment